Temporarily staff facilities
|
 |
Tilkynning um töku tilboðs 10.2.2025 |
|
Rekstraraðili innkaupa Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir Sigrún Valdimarsdóttir |
Innkaup Temporarily staff facilities 24-0067 |
|
|
Tilkynning um töku tilboðs Það tilkynnist hér með að tilboði Stólpa Gámar ehf. hefur verið valið og tekið enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar og er því kominn á bindandi samningur milli aðila. Boðið húsnæði er KOMA modular, heildartilboðsfjárhæð nam 124.992.000 kr. m.vsk. fyrir 3 ára leigusamning.
Bjóðendum var tilkynnt með tölvupósti þann 28.1.2025 sl. að ákveðið hefði verið að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. og ennfremur að a.m.k. 10 dagar skuli líða frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt þar til tilboð er endanlega samþykkt. Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 210.000 kr.
|
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir þakka fyrir þátttökuna |
Verknúmer:
Útboðsnúmer: 240067
Dagsetning ákvörðunar: 10.2.2025