Örútboð 315- Aðalstræti 92, Patreksfirði – Endurnýjun og breytingar
Númer: 315
Útboð - Aðalstræti 92, Patreksfirði – Endurnýjun og breytingar Örútboð nr. 315 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar og breytinga við Aðalstræti 92 á Patreksfirði sem hýsir lögreglu og sýslumann. Starfsemi verður í húsinu eftir því sem mögulegt er vegna yfirstandandi framkvæmda. Fyrirhuguð verkframkvæmd, verkhluti 1, nær til verkþátta sem nauðsynlegir eru til að koma fyrir lyftu í húsinu auk þess að endurgera húsið að hluta að innan. Meðal annars er um að ræða: · breytingar á burðarvirki · steinsögun og styrkingar · tilfærslu á notkun rýma og endurnýjun · færslu á lagnakerfum · undirbúning að frekari breytingum á húsinu að lokinni þessari framkvæmd Verklok eru 1. ágúst 2021 Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 2. mars kl. 14.00. |