Örútboð 345 - Þjónusta iðnmeistara
Númer: 345
29. mar. 2022 14:00Þjónustusamningur um trésmíði í menntastofnunum í umsjá Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Þjónustusamningur um endurbætur og viðhald í eftirfarandi fasteignum:
- Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
- Menntaskólinn í Kópavogi
- Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
- Borgarholtsskóli
- Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
- Háskóli Íslands - Skipholt 37
- Menntaskólinn við Sund
Örútboð nr. 345 innan rammasamnings 20201 – Þjónusta iðnmeistara
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í menntastofnunum. Verkefnið felst í almennu viðhaldi í trésmíði, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 5400 tíma í dagvinnu og 600 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 300 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Tímafjöldi er áætlun út samningstímann, þ.e. 2 ár.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@fsre.is
Bjóðendur skulu skila tilboðum sínum á rafrænu formi í tölvupósti á póstfangið: utbod@fsre.is
fyrir þriðjudaginn 29. mars 2022, kl. 14.00.