Örútboð nr. 288 - Héraðsdómur, 5. hæð - endurnýjun kaffistofu
Örútboð 288 – Þjónusta iðnmeistara
Númer: 288
Örútboð nr. 288 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna Héraðsdóms, 5. hæð - endurnýjun kaffistofu. Verkið felst í endurinnréttingu á efstu hæð í Pálshúsi fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Á efstu hæð er kaffistofa og prentherbergi sem á að endurinnrétta Um er að ræða niðurrif á núverandi innréttingum, lögnum og förgun á þeim. Full starfsemi verður í byggingunni meðan á framkvæmdum stendur og verður verktaki að taka tillit til þess.
Helstu magntölur:
Kerfisloft |
152m2 |
Gólfefni |
175m2 |
Eldhús |
Heild |
Kaffistofa |
Heild |
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn, 4. júní 2020 kl. 14.00.