Örútboð nr. 310 - Sölvhólsgata 4 – endurnýjun glugga o.fl.
Örútboð nr. 310 – Þjónusta iðnmeistara
Númer: 310
Örútboð nr. 310 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík sem hýsir Menntamálaráðuneytið. Verkefnið snýr að endurnýjun glugga, endurnýjun þaksvalafrágangs og smávægilegum múrviðgerðum og málningu á afmörkuðum hluta byggingarinnar.
Helstu magntölur:
Endurnýjun glugga | 87 stk. |
Þaksvalir, endurnýjun | 160 m2 |
Málun útveggja | 400 m2 |
Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 23. júní 2020 kl. 14.00.