ÚTBOÐ – Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn við Hamrahlíð og skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík – þjónustusamningur um málun
Örútboð nr. 249 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, Menntaskólanum í Kópavogi, Menntaskólanum við Hamrahlíð og skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 24. apríl 2018 kl. 14.00.