Örútboð nr. 338 - Akranes, þjónustusamningur aðalverktaka
Númer: 338
Örútboð nr. 338 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á fasteignum á Akranesi. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagning og málun.
Byggingar sem um ræðir: |
|
Merkigerði 9 | Sjúkrahús |
Heiðabraut 31 og 32 | Íbúðir |
Vogabraut 4 og 5 | Fjölbrautaskóli Vesturlands |
Þjóðbraut 13 | Lögreglustöð |
Stillholt 16-18 | Skrifstofur |
Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:
Iðngrein | DV | YV | Akstur |
Trésmíði | 1000 | 100 | 80 |
Rafvirkjun | 800 | 80 | 60 |
Pípulagnir | 800 | 80 | 60 |
Málun | 800 | 80 | 60 |
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn, 7. sept. 2021 kl. 14.00.