ÚTBOÐ – Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um pípulagnir
Örútboð nr. 223 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.
Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á pípulögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 1200 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 90 ferðir vegna efnisöflunar.
Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 19. september 2017 kl. 14:00.