ÚTBOÐ – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði og Borgartún 7 í Reykjavík – þjónustusamningur um trésmíði
Örútboð nr. 241 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.
Ríkiseignir óska eftir trésmiðum
til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ, Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og skrifstofuhúsnæði að Borgartún 7
í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi
breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 13. febrúar 2018 kl. 14.00.