ÚTBOÐ – Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Menntaskólinn í Kópavogi og Skipholt 37 – þjónustusamningur um trésmíði
Örútboð nr. 230 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna
Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, Menntaskólanum í Kópavogi og í skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 500 tíma í dagvinnu og 50 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 35 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.
Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 7. nóvember 2017 kl. 14.00.