ÚTBOÐ – Heilsugæslan Hlíðum – Endurnýjun lóðar og frárennslislagna
Örútboð nr. 202 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna
Ríkiseignir óska eftir skrúðgarðyrkjumönnum
til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar lóðar og frárennslislagna
við Heilsugæsluna Hlíðum, Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík. Verkið felst í heildarendurnýjun
á núverandi lóð, ásamt því að koma fyrir regnvatns– og drenlögnum kringum
húsið. Heildarstærð lóðar er 913,6 m².
Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 21. desember 2017 kl. 13.00.