ÚTBOÐ – Listaháskóli Íslands, Árleynir 2 og Árleynir 22 – þjónustusamningur um pípulagnir
Örútboð nr. 248 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum
til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Listaháskóla
Íslands (Lauganesvegi 91), Árleyni 2 og Árleyni 22. Verkefnið felst í
almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir
þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 5. apríl 2018 kl. 14.00.