ÚTBOÐ – Listaháskóli Íslands, Árleynir 2 og Árleynir 22 – þjónustusamningur um trésmíði
Örútboð nr. 247 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir trésmiðum
til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Listaháskóla Íslands
(Lauganesvegi 91), Árleyni 2 og Árleyni 22. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi,
tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 2000 tíma í dagvinnu og 200 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 150 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 3. apríl 2018 kl. 14.00.