ÚTBOÐ – Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um trésmíði
Örútboð nr. 235 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna
Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Menntaskólanum við Sund og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 1.100 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 6. desember 2017 kl. 14.00.