Örútboð 316– Skúlagata 4 - rif innanhúss
Örútboð 316 – Þjónusta iðnmeistara
Númer: 316
Örútboð nr. 316 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna breytinga innanhúss að Skúlagötu 4.
Um er að ræða rif innanhúss á Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Húsið sem um ræðir er sex hæða bygging teiknuð af Halldóri H. Jónssyni árið 1961. Árið 1965 var byggður fjögurra hæða kálfur sunnan megin við bygginguna. Í 1. áfanga er fyrirhugað að hreinsa allt út á 2. og 3. hæð hússins, alls um 2000 m2 og valin svæði á fyrstu hæð alls um 400m2. Verkið nær til niðurrifs á eftirfarandi liðum, ásamt öllu því tilheyrandi, flokka efni og farga á viðurkenndan hátt.
Eftirtaldir byggingarhlutar skulu fjarlægðir:
· léttir innveggir
· léttir kerfisveggir
· innréttingar, hurðir og innigluggar
· gólfflísar og gólfdúkar
· niðurhengd loft og kerfisloft
· vatns- og raflagnir
· kælikerfi og kæligeymslur
Bjóðendum er boðið til vettvangsskoðunar að Skúlagötu 4, fimmtudaginn 29. okt. 2020 Kl. 13:00.
Verklok eru 15. jan. 2021
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, 5. nóv. 2020 kl. 14.00.