Hönnunarsamkeppni um nýbyggingu fyrir Alþingi
Númer 20352
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Alþingis býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um nýja byggingu fyrir Alþingi á Alþingisreit.
Um er að ræða um 4.500 m² byggingu, auk um 1.200 m² bílakjallara. Byggingin mun hýsa starfsemi Alþingis, þ.e. aðra starfsemi en þá sem er og verður í Alþingishúsinu, skála og öðrum byggingum við Kirkjustræti sem tilheyra Alþingi. Aðallega er um að ræða aðstöðu fyrir þingmenn og þingflokka og nefndastörf, auk rekstrar- og þjónustusviðs.
Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 15. ágúst 2016 en því síðara 22. september 2016.
Skilafrestur tillagna er 25. október 2016, fyrir kl. 15:00 hjá Ríkiskaupum.
Veitt verða verðlaun að heildarfjárhæð 14 milljónir kr. þar af verða fyrstu verðlaun 7 m.kr.
Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin á vormánuðum 2017 og að vígsla byggingarinnar gæti orðið um áramót 2019/20.
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.
Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa frá og með þriðjudeginum 28. júní 2016. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg á minniskubbi, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500,- kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.