Markaðskönnun - Varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands - Leiguhúsnæði
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu varðveislu-
húsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands.
Um er að ræða skjalageymslu auk stoðrýma s.s. móttöku bretta, flokkun, úrvinnslu gagna og starfsmannarými.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu í 5 til 10 ár með möguleika á framlengingu. Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar sem fyrst en eigi síðar en 8 mánuðum frá undirritun leigusamnings.
Kröfur til húsnæðisins má sjá hér: Vardveisluhusnaedi-fyrir-Thjodskjalasafn-Islands-Huslysing
Ekki er æskilegt að byggingin sé staðsett á áhættusvæði vegna náttúruváar, s.s. jarðskjálfta-, flóða- og sprungusvæði.
Skjalageymsla má vera í 1.000-5.000 m2 rými, gjarnan óskiptu. Þar af er gert ráð fyrir um 300 m2 fyrir stoðrými.
Skilyrði er gott aðgengi fyrir stóra sendiferðabíla og möguleiki á affermingu bretta undir skyggni eða innandyra.
Vegna framtíðaráforma er einnig óskað eftir upplýsingum um 3.000-10.000 m2 í þéttbýliskjörnum á landinu sem uppfylla sömu skilyrði.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á
www.utbodsvefur.is þriðjudaginn, 30. maí 2023.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is .
Fyrirspurnarfrestur rennur út 2. júní 2023 en svarfrestur er til og með 7. júní 2023.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 15. júní 2023.
Merkja skal tilboðin; nr. 230516 – Varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands - Leiguhúsnæði
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.
Útboðsnúmer: 230516
Fyrirspurnarfrestur: 2.6.2023
Opnun tilboða: 15.6.2023