Hreinlætisaðstaða (salerni) við Jökulsárlón

Ríkiskaup, fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna kt. 510391-2259 og Vatnajökulsþjóðgarðs, kt. 441007-0940, óska eftir tilboðum í salernisaðstöðu við Jökulsárlón samkvæmt kröfulýsingu í útboðsgögnum. Um er að ræða „salernishús“ eða gámasamstæðu sem afhenda skal uppsett og tilbúið til notkunar við Jökulsárlón og þjónustu sem tryggir fullkomna virkni lausnarinnar í tvö ár, svokallaðan ábyrgðartíma..

Núverandi salernisaðstaða við Jökulsárlón er með þeim hætti að bregðast þarf við og bæta hana með skjótum hætti.

Skilafrestur13.06.2024            kl. 12:00

Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.

Útboðsnúmer: 23031

Opnun tilboða: 13.6.2024