Umhverfisstofnun óskar eftir íbúðarhúsnæði til leigu á Snæfellsnesi í námunda við Snæfellsjökulþjóðgarð eða næsta nágrenni

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu íbúðarhúsnæði fyrir Umhverfisstofnun. Miðað er við að leiga geti verið til 5-10 ára.

Leitað er eftir íbúðarhúsnæði, 150-200 fm. með 4-6 svefnherbergjum eða húsnæði sem hentar fyrir starfsfólk Snæfellsjökulþjóðgarðsins, einkum nýlegu eða viðhaldslitlu húsnæði í góðu ástandi. Til greina koma bæði íbúðir og/eða sérbýli. Einnig kemur til greina að skoða húsnæði fyrir 4-5 starfsmenn innan gistiheimilis eða hótels ef staðsetning hentar. Aðgangur þarf að vera að eldhúsi.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs íbúðarhúsnæðisins, ástands, stærð þess, skipulags, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum. Aðeins er um markaðskönnun að ræða og áskilinn réttur til að hafna öllum tilboðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Umhverfisstofnun skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is. Sjá einnig auglýsingu á útboðsvef FSRE https://www.fsre.is/auglysingar/utbod/.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. janúar 2025 en svarfrestur FSRE er til og með 24. janúar 2025.

Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 mánudaginn 27. janúar 2025.

Merkja skal tilboðin; nr. 6142158Umhverfisstofnun - Íbúðarhúsnæði.

 

Frekari upplýsingar komi til þess að kallað verði eftir tilboðum:

Lágmarkskröfur til þátttakenda:

Hið opinbera gerir ríkar kröfur til aðila sem það á í viðskiptasambandi við.

Ekki verður gengið til samninga við aðila/þátttakanda sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir eftirtalin afbrot.
a. þátttöku í skipulögðum glæpasamtökum,
b. spillingu,
c. sviksemi,
d. hryðjuverk eða brot sem tengjast hryðjuverkastarfsemi,
e. peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka,
f. barnaþrælkun eða annars konar mansal.


Sama á við þegar einstaklingur, sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir brot skv. 1. mgr., er í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn viðkomandi fyrirtækis eða hefur heimild til fyrirsvars, ákvörðunartöku eða yfirráða í því.

Vakin er athygli á því að samningsaðilar hins opinbera skulu vera í skilum með greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra lögákveðinna gjalda ásamt því að uppfylla önnur almenn hæfisskilyrði til að vera í viðskiptasambandi við ríkisaðila.

Komi til samningsgerðar verður kallað eftir upplýsingum varðandi ofangreint.

Útboðsnúmer: 6142158

Fyrirspurnarfrestur: 15.1.2025

Opnun tilboða: 27.1.2025