Vistkerfi - Öryggi - Réttindi
Leiðsagnarverkefni FSRE í samfélagsábyrgð
Sumarið 2019 hófst vinna innan FSRE að VÖR - Vistkerfi Öryggi Réttindi - leiðsagnarverkefni í samfélagsábyrgð. Markmið verkefnisins er að lágmarka neikvæð samfélagsleg áhrif af byggingaframkvæmdum og setja fordæmi fyrir byggingariðnaðinn.
Sumarið 2019 ákvað FSRE að setja á stofn leiðsagnarverkefni sem tæki á helstu þáttum neikvæðra samfélagsáhrifa vegna byggingaframkvæmda. Verkefnið fékk nafnið VÖR - Vistkerfi Öryggi Réttindi. Verkefninu var hleypt af stokkunum í einu stærsta verkefninu sem FSRE kemur að þessi misserin - Húsi íslenskunnar. Byggingaframkvæmdir hófust í ágúst 2019 og hafði undirbúningur verkefnisins þá staðið í nokkurn tíma.
VÖR verkefninu er ætlað að lágmarka neikvæð áhrif byggingaframkvæmda á sviði umhverfis-, öryggis- og réttindamála.
FSRE leitaði samstarfs við ÍSTAK, aðalverktaka við Hús íslenskunnar til að þróa aðferðarfræðina, en auk verktakans koma Vinnueftirlit ríkisins, Rauði krossinn, ASÍ og BREEAM stofnunin í Bretlandi að verkefninu með einum og öðrum hætti
Vistkerfismál
Markmið með aðgerðum er að lágmarka umhverfisáhrif af framkvæmdum og rekstri byggingarinnar.Aðgerðir byggja á því að sækjast eftir BREEAM vottun á hönnun og framkvæmd bygginarinnar.
Mælikvarðar sem notaðir eru til að meta árangur felast í mælingu á sjálfbærnibreytum, til dæims orkunotkun, úrgangi, landnotkun og ferðamátum sem í boði eru til og frá byggingunni.
Öryggismál
Markmið með aðgerðum er að engin alvarleg slys verði á verkstaðnum og að starfsfólk njóti góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu á verktímanum.
Aðgerðir eru margþættar:
- Vinnusvæðið er lokað - eingöngu þau sem eiga erindi komast inn á svæðið.
- Öryggisbúnaður og öryggiskynning er skydla fyrir alla sem fara inn á svæðið
- Skyndihjálparnámkskeið er skylda fyrir allt starfsfólk
- Trúnaðarlæknir og andleg skyndihjálp er í boði fyrir allt starfsfólk
- Öryggismenning er byggð upp á verkstaðnum, meðal annars með að hafa öryggismál fyrst á dagskrá allra verkfunda auk þess sem öryggisfulltrúi í fullu starfi er á verkstað
Mælikvarðar í öryggismálum eru:
- Fjöldi alvarlegra slysa (0 fyrsta árið)
- Fjöldi veikindadaga samanborið við svipuð verkefni
- Mæling á heilsufari framkvæmd af trúnaðarlæknum
Réttindamál
Markmið eru að vinnuaðstæður séu til fyrirmyndar og að öll réttindi starfsmanna séu virt að fullu
Aðgerðir felast í:
- Stafræn innskráning á verkstað tryggir miðlæga þekkingu á réttindum starfsmanna
- Virkt eftirlit verkalýðsfélaga á verkstað
- Keðjuábyrgð
Mælikvarðar á árangur felast í fjölda mála sem upp koma og varða réttindi starfsmanna og starfsmannaveltu.