• IMG_0584
  • Frett-arnarhv_1538752667542

5. október 2018

Áfangi í framkvæmdunum á Arnarhvoli

Í vikunni fór fram öryggisúttekt á fyrsta hluta, það er 1. hæð og kjallara, í þriðja áfanga innanhússbreytinga á Arnarhvoli. 

Starfsfólk fjármála- og efnahagsráðuneytisins er nú að koma sér fyrir á 1. hæðinni og jafnframt rýma í leiðinni á 2. hæð þar sem annar hluti framkvæmda við endurbætur fer senn í gang.

Verkið felst í að endurinnrétta kjallara, 1., 2., og 3. hæð í austurhluta Arnarhvols. Áætluð verklok eru árið 2019. Þetta er þriðji og jafnframt stærsti áfanginn í innanhússbreytingum á Arnarhvoli. Byrjað var á utanhússviðgerðum og síðan tóku við tveir áfangar í innanhússbreytingum og endurbótum á árunum 2013-2016.

  • Verktaki við þennan áfanga er Sérverk ehf. 
  • Hönnun: Gláma/Kím ehf. og EFLA verkfræðistofa hf.
  • Verkkaupi: Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Umsjón og eftirlit: Framkvæmdasýsla ríkisins


Fréttalisti