• A

10. október 2017

Arnarhvoll - austurhluti - endurbætur innanhúss

Í dag var opnun tilboða vegna endurbóta og innanhússbreytinga í austurhluta Arnarhvols.

Verkið felst í að endurinnrétta kjallara, 1., 2., og 3. hæð í austurálmu Arnarhvols.

Þetta er síðasti og jafnframt stærsti áfanginn í innanhússbreytingum á Arnarhvoli. Byrjað var á utanhússviðgerðum og síðan tóku við tveir áfangar í innanhússbreytingum og endurbótum á árunum 2013-2016. 

Kostnaðaráætlun var kr. 385.417.343.-

Þrjú tilboð voru opnuð frá eftirtöldum aðilum:

  • Sérverk ehf.          kr. 431.615.295.-
  • Mannverk ehf.      kr. 561.416.911.-
  • Eykt ehf.               kr. 783.775.321.-

Lægsta tilboðið var frá Sérverk ehf., eða sem nemur 111,99% af kostnaðaráætlun.

Tilboð eru í yfirferð hjá FSR og niðurstaðan verður tilkynnt á næstu dögum.


Fréttalisti