Basalt og Efla hlutskörpust í samkeppni um hjúkrunarheimili á Höfn
BASALT arkítektar ásamt verkfræðistofunni EFLU voru hlutskarpastir í hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili sem byggt verður á Höfn í Hornafirði. Sautján tillögur bárust, þrjár hlutu verðlaun og tvær viðurkenningu.
BASALT arkítektar ásamt verkfræðistofunni EFLU voru hlutskarpastir í hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili sem byggt verður á Höfn í Hornafirði. Sautján tillögur bárust, þrjár hlutu verðlaun og tvær viðurkenningu. Niðurstöður dómnefndar má finna á hér , en allar tillögur eru birtar hér.
Nýja hjúkrunarheimilið mun rísa á Höfn í Hornafirði og leysa af hólmi eldra heimili sem uppfyllir ekki kröfur nútímans varðandi húsnæði og aðbúnað. Stefnt er að því að útboð á verklegum framkvæmdum verði auglýst í byrjun árs 2020 og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2021.
Samkeppnin er sú fyrsta sem Framkvæmdasýslan hefur umsjón með sem er með öllu stafræn. Tillögum var skilað, þær metnar og kynntar á stafrænu formi.