Ert þú skapandi?
Framkvæmdsýsla ríkisins leitar að öflugum verkefnastjórum.
Hlutverk Framkvæmdasýslu ríkisins, FSR, er að vera leiðandi afl á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins.
Stofnunin starfar í krefjandi umhverfi og er hæft starfsfólk grunnstoð hennar. Lögð er áhersla á að starfsfólk sýni frumkvæði, fagmennsku og þjónustulund. Lagt er upp úr því að starfsmenn njóti sín í starfi og hafi möguleika á að auka þekkingu sína og reynslu með markvissum hætti. FSR er í fararbroddi við að innleiða vistvænar vinnuaðferðir og upplýsingalíkön mannvirkja (BIM) í byggingariðnaði á Íslandi. FSR vinnur samkvæmt vottuðu gæðastjórnunarkerfi ISO 9001 og er stöðugt unnið að því að auka gæði í starfsemi stofnunarinnar.
FSR sækist eftir faglegu og metnaðarfullu starfsfólki sem vill takast á við krefjandi og skapandi verkefni á jákvæðan og faglegan hátt.
Verkefnastjóri í verklegum framkvæmdum - Verk- eða tæknifræðingur
Verkefnastjóri við undirbúning framkvæmda - Arkitekt eða byggingafræðingur
Verkefnastjóri í umhverfismálum
Umsóknarfrestur er til 18. maí næstkomandi. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is