• Nýr Landspítali, meðferðarkjarni
  • Nýr Landspítali
  • Nýr Landspítali

16. júlí 2015

Fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala

Í dag var síðari opnun tilboða í fullnaðarhönnunar meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala.

Meðferðarkjarninn, sem áætlaður er að verði 58.500 fermetrar, verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Fullnaðarhönnun byggir á þeirri forhönnun sem nú liggur fyrir.
Meðferðarkjarninn verður ein af fjórum nýbyggingum við Landspítalann og sú stærsta.
Kostnaðaráætlun var kr. 2.740.500.000.-
Fjögur tilboð voru opnuð frá eftirtöldum aðilum:

Verkís - TBL
Grænaborg
CORPUS3
Mannvit hf.
kr. 1.563.430.000.-
kr. 1.620.593.000.-
kr. 1.399.303.400.-
kr. 1.513.171.040.-

Lægsta tilboðið var frá CORPUS3, en hópurinn samanstendur af VSÓ Verkfræðistofu, VJI Verkfræðistofu, Hornsteinum arkitektar og Basalt arkitektar.



Fréttalisti