Góður gangur í Húsi íslenskunnar
Stutt í að fyrsta hæð verði fullsteypt
Píningsvetur hefur ekki haft alvarlegar afleiðingar fyrir byggingu Húss íslenskunnar. Nú eru kjallari og fyrsta hæð risin að mestu og í dag var steypt linnulaust.
Þrátt fyrir afleitt vetrarveður og heimsfaraldur hafa framkvæmdir við Hús íslenskunnar gengið vel það sem af er ári. Eru framkvæmdirnar á áætlun, en illviðri dró heldur úr framkvæmdahraða í desember, janúar, febrúar og mars. Undanfarnar vikur hefur fyrsta hæðin litið ljós og sporöskjulaga form byggingarinnar farið að sýna sig.
Framkvæmdir hófust síðastliðið haust, en hafist var handa við að steypa kjallara, bílakjallara og undirstöður undir tjörn sem umlykja mun húsið.
Nú er svo komið að fyrsta hæðin er svo til fullsteypt og unnið að því að járnabinda gólfplötu 2. hæðar.
Húsi íslenskunnar er ætlað að vera fullbyggt haustið 2023, en þá flytja starsemi Árnastofnunar og íslenskudeildar Háskóla Íslands í bygginguna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá framkvæmdir á svæðinu síðdegis í dag, 5. maí. Á myndbandinu hér að neðan má sjá þróun byggingarinnar frá áramótum til loka apríl.