Heilbrigðisráðherra opnar nýja götu
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, og fulltrúar frá sjúklingasamtökum opnuðu í dag formlega nýja götu á lóð Landspítala við Hringbraut.
Að því loknu gengu fulltrúar sjúklingasamtaka með ráðherra eftir nýju götunni, sem liggur frá Barónsstíg að K-byggingu Landspítala, samhliða nýju sjúkrahóteli sem verður tekið í notkun á næsta ári.Í upphafi árs var hafist handa við byggingu að sjúkrahóteli á lóð Landspítala við Hringbraut. Endurbætur hafa staðið yfir á götunni frá Barónsstíg að aðalinngangi spítalans. Bygging sjúkrahótelsins gengur vel og er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Nýs Landspítala við Hringbraut (NLSH).