• Heilsugæslustöðin Reykjahlíð

11. ágúst 2016

Heilsugæslustöðin Reykjahlíð vígð

Nýtt húsnæði heilsugæslustöðvarinnar Reykjahlíð í Mývatnssveit var vígt í gær. 

Nýtt húsnæði heilsugæslunnar er bylting í aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og íbúa í Mývatnssveit, en heilsugæslan leysir af gamalt íbúðarhús, þar sem heilsugæslan hefur verið til húsa frá árinu 1984. Við þessa breytingu flyst sjúkraþjálfun inn í nýju heilsugæsluna og er það framför í þjónustu við íbúa. 

Heilsugæslan Reykjahlíð þjónar grunngæslu í um 400 manna byggðalagi allan ársins hring, ásamt því að þjóna einnig þeim fjölmörgu ferðamönnum sem heimsækja svæðið. 

Í húsnæðinu er aðstaða fyrir hjúkrunarfræðing, ljósmóður, sálfræðing, iðjuþjálfa, lækni, sjúkraliða, ritara og sjúkraþjálfara. Lyfjaafgreiðsla eða apótek er í húsnæðinu. Heilsugæslustöðin er hluti af Heilbrigðisstofnun Norðurlands. 



Fréttalisti