11. júlí 2019

Hús íslenskunnar: Undirbúningur framkvæmda hafinn

Fyrsti verkfundur vegna Húss íslenskunnar fór fram í vikunni. Hafinn er undirbúningur fyrir byggingu hússins, sem áætlað er að ljúki á árinu 2023. 

Fyrsti verkfundur vegna Húss íslenskunnar fór fram í vikunni. Hafinn er undirbúningur fyrir byggingu hússins, sem áætlað er að ljúki á árinu 2023. Uppbygging vinnusvæðisins er hafin, en áætlað er að formlegt upphaf byggingaframkvæmda verði um miðjan ágúst.

Þriðjudaginn 9. júlí sl. hófst undirbúningur byggingaframkvæmda á Húsi íslenskunnar við Arngrímsgötu 5 í Vesturbæ Reykjavíkur. Á næstu vikum verður lögð áhersla á að búa til verkstað í hæsta gæðaflokki á sama tíma og framkvæmdir verða skipulagðar. 

Í húsinu verða helstu dýrgripir íslenskrar menningar varðveittir til allrar framtíðar, auk þess sem kennsla og rannsóknir í íslensku munu fara þar fram. Árnastofnun og Háskóli Íslands munu hafa aðsetur í húsinu.

Ístak er aðalverktaki framkvæmdanna, en húsið er byggt samkvæmt endurskoðaðri teikningu arkitektastofunnar Hornsteina.


Fréttalisti