19. janúar 2021

Hvernig eru skrifstofur að breytast?

Forstjóri FSR með erindi á Nýsköpunardegi hins opinbera

Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri FSR heldur erindi á nýsköpunardegi hins opinbera 21. janúar næstkomandi. Erindi hennar fjallar um hvernig Covid 19 flýtir þeirri þróun skrifstofuhúsnæðis sem var hafin þegar faraldurinn skall á. Hægt er að skrá sig til leiks hér

Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn í annað sinn 21. janúar næstkomandi en yfirskrift dagsins í ár er Áhrif Covid-19 á opinbera þjónustu: Lærdómar til framtíðar. Um fjarviðburð er að ræða sem hægt verður að fylgjast með í streymi milli klukkan 9 og 11:30. Skráning er hafin en þátttaka í deginum er ókeypis.

Seinni hluta dagsins mun Guðrún Ingvarsdóttir halda fyrirlestur um hvernig vinnuaðstaða skrifstofufólks hjá hinu opinbera hefur breyst í tímans rás og hvernig yfirstandandi faraldur gæti flýtt þeirri þróun. Mun Guðrún meðal annars fjalla um hvernig starfsfólki FSR hefur fjölgað um úr 18 í 42, en hefur með litlum tilkostnaði komið sér fyrir í sama húsnæði. 

Dagskráin fyrri hluta dags samanstendur af fræðslu og reynslusögum opinberra aðila en eftir hádegið er hver og einn vinnustaður hvattur til að skipuleggja nýsköpunardagskrá hjá sér ásamt því að Nýsköpunarmolar ólíkra stofnana verða í boði.

Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á opinberri þjónustu og nýsköpun. Nýsköpunardagur hins opinbera er nú haldinn í annað sinn en að deginum standa fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Ísland.is og Ríkiskaup.

Dagskráin:

09.00 Dagurinn hefst. Kynnir dagsins er Þröstur Sigurðsson hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar.

Góð samvinna:

Hvernig höldum við því jákvæða sem síðustu mánuðir hafa kennt okkur? Lene Jeppesen, Miðstöð opinberrar nýsköpunar Danmörku. Lene mun fjalla um áhrif COVID á nýsköpun hjá opinberum vinnustöðum og hvernig megi viðhalda því jákvæða sem síðustu mánuðir hafa kennt okkur, svo sem meiri samvinnu á milli aðila. Lene mun fræða okkur um aðferðafræði sem snýr að því hvernig best er að yfirfæra nýsköpunarverkefni á milli ólíkra vinnustaða.
Reynslusaga: Frá viðbragði til uppbyggingar fyrir viðkvæmustu hópana. Tryggvi Haraldsson, félagsmálaráðuneytinu, og María Kristjánsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Verkefnið sem þau fjalla um snýr að því hvernig ólíkir aðilar hafa þurft að bregðast við með aukinni samvinnu og nýsköpun til þess að veita opinbera þjónustu á tímum COVID. Við ætlum að kynnast viðbragðsteymi sem var sett á laggirnar til að draga úr þjónusturofi við viðkvæma hópa, gæta öryggis og halda uppi þjónustu á sviði félags- og barnaverndar.
Framúrskarandi þjónusta:
Hvert er hlutverk starfsmanna í stafrænum umbreytingum? Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafrænt Ísland. Andri mun fjalla um hvert hlutverk starfsmanna er í stafrænum umbreytingum og talar um þær stóru breytingar sem orðið hafa á þjónustu hins opinbera í gegnum stafræna miðla í kjölfar COVID og hvert opinber þjónusta stefnir í þeim málum.
Reynslusaga: Stafrænt heljarstökk heilsugæslunnar. Ingi Steinar Ingason, Embætti landlæknis, og Ragnheiður Erlendsdóttir, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áskorun heilbrigðisþjónustunnar hefur verið mikil síðastliðið ár og hefur hún þurft að bregðast hratt við erfiðum aðstæðum. Í erindinu verður farið yfir hvernig brugðist var við auknu álagi á heilsugæslunni með stafrænum lausnum sem hafa skilað sér í ótrúlegri skilvirkni og bættri þjónustu.
Öflugur mannauður:
Hið mannlega í síbreytilegu umhverfi. Aldís Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins. Aldís mun fjalla um hið mannlega í síbreytilegu umhverfi og þá hæfni og færni sem starfsfólk og stjórnendur þurfa að búa yfir og tileinka sér í umhverfi stöðugra umbóta og mikilvægi hvetjandi starfsumhverfis til framþróunar.
Reynslusaga: Mannauðurinn á tímum áskorana. Regína Ásvaldssdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Regína mun fara yfir það hvernig velferðarsvið Reykjavíkurborgar þurfti að bregðast við COVID til þess að geta haldið úti þjónustu við íbúa borgarinnar og hvernig þeim tókst að virkja mannauðinn á erfiðum tímum.

 

10.40 Bergur Ebbi með skilaboð inn í nýtt ár. Í erindi sínu fjallar Bergur Ebbi um stóru spurningarnar sem knýja dyra á nýju ári. Hver er lærdómurinn af 2020 og hefur gildismat okkar breyst? Hvað höfum við lært um sköpun og aðlögunarhæfni og hvernig getum við nýtt okkur það í framtíðinni?

11.00 Umræðuhópar á TEAMS um samvinnu, þjónustu og mannauð.
11:30 Lok dagskrár.  


Eftir hádegi
verður boðið upp á nýsköpunarmola frá vinnustöðum, þar sem sagt verður frá þeim nýsköpunar verkefnum sem hrint hefur verið í framkvæmd á liðnu ári.
Tenglar verða settir undir hvern viðburð þegar nær dregur og tímasetningar á kynningunum. Boðið verður upp á spurningar og umræður í lok kynninga. Hvert viðburður verður um klukkustund.

Snjallvæðing á þjónustu 12:30-13:30
• Innleiðing á rafrænu ferli kærumála – Kári Gunndórsson, nefndarmaður hjá Úrskurðanefnd velferðarmála
• Innleiðing á snjallmenninu Vinný – Gísli Davíð Karlsson, þjónustustjóri hjá Vinnumálastofnun
• Innleiðing velferðartækni – Sigþrúður Guðnadóttir, verkefnisstjóri velferðartæknismiðju
Tengill á fund: https://bit.ly/2N4zqYR

Nýsköpun í vinnustaðamenningu – 13.30-14.30
• Nýsköpun í stjórnun og breytt skipurit – Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa
• Verkefnamiðað vinnuumhverfi og fjarvinna – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
• Betri vinnutími – Aldís Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins

Tengill á fund: https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_ZWNjZGM2NWEtYTljMy00NjI5LThmNTItMTE0YjFlNzhiZTVj%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%22bc14a44e-e0fb-4e0b-a535-100579d41b65%22%2c%22Oid%22%3a%22788f55ed-56ba-4d9e-aa54-9b42129363d8%22%7d

Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu – 14.30-15.30

• Aukin þróun og notkun á Heilsuveru á tímum COVID-19 – Guðrún Auður Harðardóttir, verkefnastjóri Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna, Embætti landlæknis
• Þróun COVID-19 göngudeildarinnar – Runólfur Pálsson, forstöðumaður lækninga
• Samkeyrsla birgðayfirlits og innkaupa hjá Landspítala – Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Landspítala

Tengill á fund: https://us02web.zoom.us/j/82034643613?pwd=dTRicXlOdCtoYUgvQ0FLMHVncGUxdz09

Nýsköpun sveitarfélaga í Covid – hvernig getum við viðhaldið jákvæðum breytingum? – 14:30-15:30

Covid reynsla og lærdómar úr tveimur sveitarfélögum

  • Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar
  • Þórdís Ósk Helgadóttir forstöðumaður Súlunnar verkefnastofu í Reykjanesbæ

Reynsla Reykjavíkurborgar af þjónustuhönnun sem aðferð til nýsköpunar

  • Andri Geirsson, Arna Ýr Sævarsdóttir og Björk Brynjarsdóttir, þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar

Umræður

Fundarstjóri Fjóla María Ágústsdóttir breytingastjóri stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Tengill á fund: https://bit.ly/3qyUmWq

Hver og einn vinnustaður er jafnframt hvattur til að skipuleggja nýsköpunardagskrá hjá sér.

Hugmyndir:

  • Hægt er að halda vinnustofur um innra nýsköpunar- og umbótastarf og greina aukin tækifæri til samvinnu.
  • Ræða hvaða breytingar Covid-19 hafi leitt til í starfseminni sem áhugi er á að viðhalda.
  • Vinnustofa um hvernig starfsemi og þjónusta ykkar mun þróast með sem bestum hætti næstu árin og hvar helstu tækifæri liggja til nýsköpunar og umbóta.

Fréttalisti