• OB1.verdl
  • 1.-verdlaun

3. desember 2018

Niðurstöður samkeppna um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og um skipulag Stjórnarráðsreits

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag verðlaun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og opnaði sýningu á tillögum í framkvæmdasamkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 

Alþingi samþykkti ályktun í október 2016 þar sem meðal annars var kveðið á um að fela ríkisstjórninni að efna til samkeppni um hönnun viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið og skipulag Stjórnarráðsreits. Þingsályktunin var samþykkt í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands árið 2018.

Framkvæmdasýsla ríkisins annaðist framkvæmd samkeppninnar fyrir hönd forsætisráðuneytisins. Alls bárust þrjátíu tillögur um hönnun viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið og átta tillögur í samkeppnina um skipulag Stjórnarráðsreits. Báðar samkeppnirnar voru unnar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands en hugmyndasamkeppnin um skipulag Stjórnarráðsreits var einnig unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag verðlaun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og opnaði sýningu á tillögum í framkvæmdasamkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Í samkeppnunum var meðal annars lögð áhersla á umhverfisvænar lausnir, vandað skipulag, góða byggingarlist og heildarlausn.

Þrjár tillögur hlutu verðlaun í sitthvorri samkeppninni, auk þeirra sem hlutu innkaup og þeirra sem eru taldar athyglisverðar.

Verðlaun fyrir samkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið:

Fyrstu verðlaun hlutu Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason hjá KURTOGPÍ og Garðar Snæbjörnsson, Jóhanna Høeg Sigurðardóttir og Ólafur Baldvin Jónsson.

Önnur verðlaun hlutu Hjörtur Hannesson arkitekt, Haraldur Örn Jónsson arkitekt og Kristján Garðarsson, arkitekt hjá andrúm arkitektar.

Þriðju verðlaun hlutu Ene Cordt Andersen, arkitekt MAA, Þórhallur Sigurðsson, arkitekt MAA, Ali Tabatabai arkitekt, Kim Bendsen arkitekt og Laura Voinescu, arkitekt hjá ANDERSEN & SIGURDSSON ARKITEKTAR. 

Dómnefndarálit um framkvæmdasamkeppni viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu 

 Verðlaun fyrir samkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits:

Fyrstu verðlaun hlutu T.ark Arkitektar og SP(R)INT Studio. Karl Kvaran, arkitekt (FAÍ) og skipulagsfræðingur, Ivon Stefán Cilia, arkitekt, FAÍ, Sahar Ghaderi, arkitekt Ph.D, og Sara Mortazavi, arkitekt skipa hönnunarteymið.

Önnur verðlaun hlutu Ólafur Finnsson, Diana Cruz, Knut Hovland og Hallgrímur Þór Sigurðsson hjá Nordic – Office of Architecture, Victoria Batten, Louise Fill Hansen hjá SLA og Jóhanna Helgadóttir og Bergþóra Kristinsdóttir hjá Eflu.

Þriðju verðlaun hlutu Anna María Bogadóttir, arkitekt hjá Úrbanistan, Eva Huld Friðriksdóttir arkitekt og Magnea Þóra Guðmundsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Stika, og Rainer Stange landslagsarkitekt og Stine Svanemyr, landslagsarkitekt hjá Dronninga landskap.

Dómnefndarálit um hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits

Innkaup og athyglisverðar tillögur

Auk tillaga sem hlutu verðlaun voru eftirtaldar tillögur keyptar og aðrar fengu viðurkenningu sem athyglisverðar tillögur í samkeppnunum tveimur.

Viðbygging við Stjórnarráðshúsið:

  1. Innkaup: T.ark Arkitektar ehf.
  2. Innkaup: KRADS og AAR
  3. Innkaup: TRÍPÓLÍ ARKITEKTAR

Athyglisverð tillaga: HORNSTEINAR ARKITEKTAR
Athyglisverð tillaga: Cubo Arkitekter A/S
Athyglisverð tillaga: PKdM

Hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits:
Innkaup: Sei ehf.
Innkaup: ASK Arkitektar ehf.

 


Fréttalisti