Opinber útboð á sameiginlegan vef
Nýr vefur um útboð á vegum hins opinbera hefur verið opnaður en markmið hans er að auðvelda aðgengi áhugasamra að upplýsingum um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila, með því að birta á einum stað auglýsingar um opinber útboð.
Á nýja vefnum, utbodsvefur.is, birtast auglýsingar og tilkynningar um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Undir það flokkast innkaup ríkis, sveitarfélaga og veitufyrirtækja þegar fjárhæðir innkaupa eru yfir innlendum og erlendum útboðsmörkum.
Á útboðsvefnum geta opinberir aðilar einnig auglýst innkaup undir viðmiðunarmörkum til að tryggja gegnsæi.
Eftirtaldir eru ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samstarf um hinn nýja útboðsvettvang:
- Ríkiseignir
- Framkvæmdasýsla ríkisins
- Landsnet
- Orkuveita Reykjavíkur
- Reykjavíkurborg
- Ríkiskaup
- Vegagerðin