• Althingi-Undirritun-radgjafarsamnings2

8. ágúst 2017

Ráðgjafarsamningur um nýbyggingu fyrir Alþingi undirritaður

Í ágústbyrjun var ráðgjafarsamningur um nýja skrifstofubyggingu fyrir Alþingi á Alþingisreit undirritaður af fulltrúum Alþingis og Studio Granda.

Unnið er að áætlunargerð fyrir skrifstofubygginguna með Studio Granda sem eru vinningshafar hönnunarsamkeppni um verkefnið sem fram fór á síðasta ári. Áætlað er að hönnun fyrri áfanga ljúki um mitt ár 2018 og að skrifstofubyggingin verði tilbúin vorið 2020.


Fréttalisti