Rýnifundir vegna samkeppna um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og um skipulag Stjórnarráðsreits 4. desember 2018
Í október 2016 samþykkti Alþingi ályktun um það meðal annars að fela ríkisstjórninni að efna til samkeppna um hönnun viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið og skipulag Stjórnarráðsreits. Þingsályktunin var samþykkt í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands árið 2018.
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur haft umsjón með samkeppnunum fyrir hönd forsætisráðuneytisins. Báðar samkeppnirnar eru unnar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands en hugmyndasamkeppnin um skipulag Stjórnarráðsreits er einnig unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta. Alls bárust þrjátíu tillögur um hönnun viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið og átta tillögur í hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits.
Úrslit samkeppnanna liggja nú fyrir. Verðlaunaafhending fer fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu 3. desember 2018. Rýnifundir vegna þeirra verða haldnir á sama stað þriðjudaginn 4. desember. Sá fyrri hefst kl. 15.00 vegna hugmyndasamkeppninnar um Stjórnarráðsreitinn og sá síðari kl. 17.00 vegna viðbyggingarinnar við Stjórnarráðshúsið.