17. mars 2020

Samningur um nýtt húsnæði Vegagerðarinnar undirritaður

Reginn byggir sérstaka byggingu sem Vegagerðin mun leigja til 20 ára

Undirbúningsvinna við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar hefur staðið yfir hjá FSR um nokkuð skeið. Síðastliðinn föstudag undirrituðu forstjóri Vegagerðarinnar og forstjóri Regins undir leigusamning um húsnæði í Garðabæ sem Reginn mun byggja og eiga, en leigja Vegagerðinni til langs tíma

Framkvæmdasýslan hefur um langt skeið leitað framtíðarhúsnæðis fyrir Vegagerðina. Lausnin verður fólgin í nýbyggingu við Suðurhraun í Garðabæ, en eldra húsnæði á sama stað verður nýtt að einhverju leyti. Mestmegnis verður um nýsmíði að ræða. Vegagerd-1

Auglýst var eftir húsnæði í nóvember 2018. Þar er húsrýmisþörf stofnunarinnar áætluð alls 5.963 fermetrar. Húsrýmisþörf skrifstofuhúsnæðis er 3.541 fermetrar og geymsluþörf (þjónustu- og grófrými) er 2.428 fermetrar. Þá þarf að fylgja 9.000 fermetra útisvæði.Vegagerd-3

Með nýjum höfuðstöðvum verður starfsemi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu sameinuð á einn stað en Vegagerðin er nú á þremur stöðum, í Borgartúni, Vesturvör í Kópavogi og í Hringhellu í Hafnarfirði. Húsnæðið í Borgartúni er gamalt og hentar illa fyrir starfsemi Vegagerðarinnar. Nýja húsnæðið tekur fullt mið af þörfum Vegagerðarinnar. Þar munu allir vinna í opnu rými, lögð verður áhersla á birtu og hljóðvist og mismunandi verkefni starfsmanna.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar sagði í dag að þetta væri stór dagur fyrir Vegagerðina enda hefði verið stefnt að því lengi að komast í nýtt húsnæði. "Við erum að sameina þrjár starfsstöðvar í eina og það hefur verið lögð mikil vinna í að hanna húsnæði sem hentar mismunandi starfsemi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem blandast saman hefðbundnari skrifstofuvinna og grófari vinna þjónustustöðvarinnar sem sinnir ýmiskonar vinnu á vegakerfinu á svæðinu," bætti hún við.

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins sagði að þetta væri mjög jákvætt verkefni sérstaklega á þessum tíma. "Við verðum með allt að 100 manns í vinnu við þetta verkefni þegar mest verður. Þetta er töluverð fjárfesting en við erum að nýta mannvirki sem eru til staðar og svæðið líka. Framkvæmdir hefjast strax á mánudag en undirbúningur hefur staðið yfir, við ætlum að vinna hratt og ljúka þessu á 12 mánuðum. Í dag er því yfir þriðjungur af eignasafni Regins í leigu til opinberra aðila en eitt af yfirmarkmiðum Regins er að hafa hlutfall tekna frá opinberum aðilum þetta hátt enda um stöðuga og örugga leigusamninga að ræða þar sem leigutíminn er oft á tíðum lengri en gengur og gerist" sagði Helgi. 


Fréttalisti