Sementsfestun fyrr og nú
Fyrirlestrar, myndir og umfjöllun um málstofu um sementsfestun sem Steinsteypufélag Íslands og Mannvit buðu upp á nýlega er nú aðgengileg.
Steinsteypufélag Íslands og Mannvit buðu upp á málstofu um sementsfestun í vegagerð 13. nóvember síðastliðinn. Þrír fyrirlesarar voru með erindi á málstofunni sem haldin var í höfuðstöðvum Mannvits í Kópavogi.
Fyrstur tók til máls Karsten Iversen, varaformaður Steinsteypufélagsins. Hann fjallaði um sögu sementsfestunar á Íslandi og um þær áskoranir sem þurfti að takast á við framleiðslu á sementsfestun í steypustöð vegna Bakkavegar árið 2017.
Næst á mælandaskrá var Þorbjörg Sævarsdóttir, fagstjóri samgangna og vega hjá Eflu. Hún fjallaði um samanburð á sements-, bik- og óbundnum burðarlögum út frá framleiðslu, útlögn og endingu. Einnig fjallaði hún um efnisprófanir og falllóðsmælingar ásamt áhrifum festunar á yfirborðsstífni og niðurbeygjur.
Síðastur tók til máls John Skalshøi frá Aarsleff í Danmörku, en hann starfar þar sem yfirmaður rannsóknarstofu. Hann fjallaði um danska aðferðafræði, leiðbeiningar og staðla, ásamt því að fjalla um mæliaðferðir og útlögn.
Hægt er að nálgast fyrirlestrana, myndir og umfjöllun um sementsfestun hér.