Skipun forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Halldóru Vífilsdóttur í embætti forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins til fimm ára frá 1. apríl 2015.
Halldóra lauk B.Arch frá University of North Carolina, M. Arch frá Tækniháskólanum í Helsinki og námskeiðum á meistarastigi í skipulagsfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún hefur starfað sem arkitekt hjá Teiknistofunni Óðinstorgi, Arkitektastofu Hilmars og Finns og sem hönnunarstjóri Mosagötu hjá Arkís. Hún var framkvæmdastjóri Holt og bolt og var eigandi Hvar arkitekta og hefur hún auk þess starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands í nokkur ár. Árið 2010 hóf hún störf hjá FSR, fyrst sem verkefnastjóri, en sem aðstoðarforstjóri frá árinu 2012.
Embættið var auglýst í febrúar síðastliðnum og bárust 17 umsóknir.
Hlutverk Framkvæmdasýslu ríkisins er að vera leiðandi á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins. Hjá stofnuninni starfa 23 starfsmenn.