• Idnthing-2019

22. febrúar 2019

Skráning er hafin á Iðnþing 2019

Iðnþing 2019 verður haldið í Hörpu fimmtudaginn 7. mars kl. 14.00. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð. 

Hið árlega iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið í Silfurbergi í Hörpu. Hægt er að skrá sig hér.

Íslenskur iðnaður hefur verið órjúfanlegur hluti af sögu Íslands og verður þess minnst nú þegar 25 ár eru liðin frá stofnun Samtaka iðnaðarins. Á þinginu verður horft á það sem áunnist hefur í áranna rás, varpað verður upp myndum af stöðu dagsins í dag, auk þess sem rýnt verður í framtíðina. Þá munu forkólfar íslensk iðnaðar segja frá sinni framtíðarsýn.

Dagskrá

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, stýrir umræðum um viðfangsefni iðnaðar


Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Hér er hægt að skrá sig á þingið.


Fréttalisti