• Bjort-Olafasdottir-avarp_opt--4-
  • Klippt-a-borda

20. september 2017

Snjóflóðamannvirki vígð í Neskaupstað

Þriðjudaginn 19. september voru snjóflóðamannvirki á Tröllagiljasvæðinu í Neskaupstað vígð. 

Um er að ræða um 660 m langan þvergarð, um 420 m langan leiðigarð og 24 snjóflóðavarnarkeilur. Framkvæmdirnar voru unnar á árunum 2008 til 2017.

Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, setti athöfnina og bauð gesti velkomna. Því næst ræsti Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Hágarðahlaup Knattspyrnudeildar Þróttar en hlaupið var eftir þeim stígum sem orðið hafa til við framkvæmdir við snjóflóðamannvirkin. 

Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, flutti ávarp og Írena Fönn Clemmensen flutti tvö ljóð. Að því loknu flutti ráðherra ávarp og sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson sóknarprestur blessaði mannvirkin í framhaldinu.

Loks klipptu Björt Ólafsdóttir ráðherra, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Jens Garðar Helgason bæjarfulltrúar á borða til marks um að verkinu væri formlega lokið. 

Markmið með byggingu snjóflóðamannvirkjanna er að taka við snjóflóðum, stöðva flóðin og beina hluta þeirra í sjó. Við gerð þeirra var jafnframt horft til þess að nýta mannvirkin til útivistar. Göngustígar, bílastæði og áningarstaðir opna útivistarmöguleika rétt við íbúðabyggðina. Hægt er að ganga eftir görðunum endilöngum og njóta útsýnis yfir byggðina og út Norðfjörð. 

Framkvæmdasýsla ríkisins hafði umsjón og eftirlit með verkefninu. Verkkaupi var Fjarðabyggð. 

Ljósmyndirnar tók Sigurður Hlöðversson, verkefnastjóri Framkvæmdasýslu ríkisins.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna í upplýsingablaði mannvirkis við vígslu.


Fréttalisti