• Íþróttamiðstöð Grindavíkur

17. desember 2015

Steinsteypuverðlaunin 2016

Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2016. 

Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar enda steinsteypa helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2016. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. 

Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið: 

  • sýni steinsteypu á áberandi hátt 
  • sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks 
  • búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
  • auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við 
    umhverfi sitt 
  • sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun 

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent á Steinsteypudeginum 19. febrúar 2016. 

Óskað er eftir því að ábendingar berist Þorbjörgu Hólmgeirsdóttur, formanni nefndarinnar, thh@mannvit.is,  fyrir 6. janúar 2016. 

Þeim fylgi eftirtalin gögn:

  • heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi 
  • verkkaupi 
  • hönnunarteymi 
  • framkvæmdaaðili og - framkvæmdaár 
  • hvenær tekið í notkun 
  • stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu 
  • ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar) 

Nefndin áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.


Fréttalisti