• UAR-samstarf

5. júlí 2019

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Framkvæmdasýslan í aukið samstarf

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins undirrituðu í morgun yfirlýsingu um aukið samstarf milli ráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins undirrituðu í morgun yfirlýsingu um aukið samstarf milli ráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar vegna uppbyggingar innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum sem eiga sér stað á grundvelli laga nr. 20/2016 um þetta efni og önnur sambærileg verkefni.

Lagt hefur verið upp með af hálfu stjórnvalda að á árunum 2019-2021 verði gert ráð fyrir um 3 milljarða framlagi til verkefna til verndar náttúru og uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum á áætluninni. Nokkur af stærri verkefnum áætlunarinnar eru nú þegar í undirbúningi og framkvæmd hjá FSR en með samstarfinu er gert ráð fyrir aukinni faglegri aðkomu stofnunarinnar af þessum mikilvæga verkefnaflokki.

Með samstarfinu er stefnt að því að bæta enn frekar undirbúning þessara mála, auka yfirsýn yfir verkefnin, auka samræmingu milli verkefna og leitast við að gera verkefnin og framkvæmd þeirra betri, hagkvæmari og skilvirkari.

Í samstarfinu verður í fyrstu lögð megináherslan á að ná vel utan um verkefni sem falla undir lög nr. 20/2016, um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Gert er ráð fyrir að í forgangi verði að vinna með verkefni á ábyrgð Vatnajökulsþjóðgarðs.

Samstarfsyfirlýsingin gerir einnig ráð fyrir að hægt verði að yfirfæra og nýta verkferla og vinnulag við þessi verkefni vegna annarra svipaðra eða sambærilegra verkefna á vegum ráðuneytisins svo og annarra verkefna á vegum stjórnvalda sem ekki heyra undir landsáætlunina.


Fréttalisti