Uppsteypu Húss íslenskunnar er lokið
Hornsteinn lagður að húsinu í apríl
Framkvæmdir við Hús íslenskunnar fóru af stað 30. ágúst 2019, er menntamálaráðherra undirritaði verksamning við ÍSTAK um byggingu hússins.
Framkvæmdir hafa gengið vel og eru á undan áætlun. Uppsteypu hússins lauk fyrir skömmu og er lokun hússins á lokametrunum. Framundan er lagnavinna og bygging innviða hússins.

Um 50 starfsmenn hafa að jafnaði verið á svæðinu frá upphafi framkvæmda, en nú mun þeim fjölga umtalsvert, enda í mörg horn að líta í þessari sporöskjulöguðu byggingu sem er bæði stór og tæknilega flókin.
Hjarta hússins verður sérhönnuð handritageymsla í kjallara hússins, þar sem gætt verður að öryggi skinnhandrita í umsjá Árnastofnunar. Stofnunin mun deila húsinu með Háskóla Íslands og mun kennsla og rannsóknir í íslenskum fræðum flytjast í húsið.
21. apríl næstkomandi verða 50 ár liðin frá komu fyrstu handritanna til Íslands. Við það tækifæri verður hornsteinn lagður að húsinu. FSR og ÍSTAK áætla að húsið verði afhent eigendum sínum í ágúst 2022.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig framkvæmdum miðar og sjást þar meðal annars í fyrsta skipti myndir innan úr húsinu.