• Fjallid-yfirlitsmynd

17. desember 2018

Fyrirhugað útboð á verkframkvæmd við varnarvirki í Norðfirði

Almennt útboð á framkvæmdum við varnargarð og 16 varnarkeilur neðan Urðarbotns og Sniðgils í Neskaupstað er fyrirhugað um mánaðamótin janúar/febrúar 2019.

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fjarðabyggðar, kynnir fyrirhugað almennt útboð á framkvæmdum við varnargarð og 16 varnarkeilur neðan Urðarbotns og Sniðgils í Neskaupstað.  Stefnt er að því að bjóða verkframkvæmdina út um mánaðamótin janúar/febrúar 2019. 

Sú hlið garðsins og keilanna sem snýr móti fjalli verður byggð upp með netgrindum og styrktum jarðvegi. Jarðefni til byggingar garðsins og keilanna verða fengin innan framkvæmdasvæðisins, bæði laus jarðefni og efni úr bergskeringum. Verkkaupi mun leggja til netgrindur til uppbyggingar á brattri flóðhlið garðsins og keilanna. Í verkinu felst einnig færsla á vatnslögn, mótun yfirborðs bergskeringa flóðmegin við garða, gerð vinnuvega, varanlegra slóða, gangstíga og áningarstaða, gerð drenskurða, stækkun umfangs lækjarfarvega og rása, lagning ræsa, jöfnun yfirborðs og frágangur.

  • Flatarmál raskaðs svæðis ~60.000 m2
  • Rúmmál skeringa ~190.000 m3
       - Þar af er losun klappar ~58.000 m3
  • Rúmmál fyllinga ~145.000 m3

       - Þar af styrktarfyllingar ~65.000 m3
  • Styrkingarkerfi ~10.700 m2
  • Jöfnun og sáning ~25.000 m2

Heildarrúmmál þvergarðsins er áætlað um 135.000 m³. Garðurinn er um það bil 380 m langur, þar af verða um 200 m í fullri hæð. Virk hæð garðsins er 17 m en á sitthvorum hliðum garðsins er um 50-100 m kafli þar sem garðurinn lækkar úr 17 m hæð í 10-12 m í sitthvorum endunum.

Keilurnar eru 16 talsins og er uppbygging þeirra með sama hætti og þvergarðsins, það er með jöfnunarlagi og styrkingarkerfi. Keilurnar standa í tveim röðum og eru 8 m háar, 10-15 m langar og 3 m breiðar í toppinn. Heildarrúmmál keilanna er áætlað rúmlega 15.000 m³.

Reiknað er með því að verkið geti hafist á vormánuðum 2019 og verði unnið á þremur árum, 2019, 2020 og 2021. 


Fréttalisti