Viðbragðsaðilar undir eitt þak
Leitað að 30.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu eða húsnæði eða tækifærum til uppbyggingar á sameiginlegu húsnæði fyrir viðbragðsaðila
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur undanfarið ár starfað með fjármála- og dómsmálaráðuneyti að hugmyndum um sameiginlegt húsnæði fyrir alla helstu viðbragðsaðila landsins.
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur undanfarið ár starfað með fjármála- og dómsmálaráðuneyti að hugmyndum um sameiginlegt húsnæði fyrir alla helstu viðbragðsaðila landsins, eru það:
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
- Ríkislögreglustjóri
- Landhelgisgæslan
- Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Tollgæslan
- Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
- Neyðarlínan 112
FSR hefur í nokkurn tíma unnið að ítarlegri forathugun verkefnisins. Einskorðaðist hún í upphafi við að finna hentugt húsnæði fyrir löggæsluaðila. Verkefnið var síðan stækkað og gert ráð fyrir öllum viðbragðsaðilum á einum stað. Fyrr á þessu ári var aukinn þungi sett í verkefnið, enda hefur mikið mætt á viðbragðsaðilum það sem af er árinu 2020 og þörfin fyrir hentugt og nútímalegt húsnæði varð ljós.
Markmið verkefnisins er að finna hagkvæma lausn á húsnæðismálum viðbragðsaðila til framtíðar. Í forathugun er meðal annars skoðuð samlegð sem fólgin er í því að staðsetja löggæslu og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu á einum stað. Ljóst er að með því fyrirkomulagi er unnt að auka samstarf þeirra á milli auk þess sem samnýting rýma yrði talsverð. Þá myndi nýtt húsnæði vera hagnýtara og svara betur kröfum nútímans en húsnæði sem þessir aðilar hafa nú yfir að ráða. Þá er ljóst að á ögurstundu er mikill kostur að þeir aðilar sem vernda líf og eignir landsmanna séu staðsettir í sama húsnæðinu.
Á morgun laugardag munu Ríkiskaup birta markaðsauglýsingu vegna lóðar undir húsnæðið. Áætlað er að þurfi um 30.000 m² lóð undir mannvirki, bílastæði og útisvæði.
Auglýsingin verður aftur birt á þriðjudag. Kynningarfundur verður haldinn fyrir áhugasama 2. júlí 2020 kl.14:00 í fundarsal á fyrstu hæð í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.

Frekari upplýsingar má nálgast á vef Ríkiskaupa, eða með að smella hér .