Aðstaðan hentar ekki lengur, hvað geri ég?
Breytingar í starfsemi hins opinbera geta verið örar. Hnikanir á starfsmannahaldi eða hlutverki geta kallað á nýjar húsnæðisþarfir.
FSRE hefur yfirsýn yfir fasteignir í eigu ríkisins og umsjón með leigusamningum við einkaaðila. Við höfum á að skipa sérfræðingum með mikla reynslu af því að breyta og bæta aðstöðu, starfsfólki og almenningi til heilla.
Hafðu samband til að ræða breytingar á aðstöðu. Sendið erindi á: leigutorg@fsre.is
Vinsamlegast hafið eftirfarandi upplýsingar í póstinum:
- Nafn stofnunar
- Þitt nafn
- Farsímanúmer
- Staðsetning eignarinnar
- Lýsandi myndir af vandamálinu
Við bregðumst við eins fljótt og auðið er.