17. nóvember 2022

Ólafur nýr framkvæmdastjóri Framkvæmdasviðs

Ólafur Daníelsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Þróunar- og framkvæmda hjá FSRE. Hann tekur við af Þresti Söring. Þröstur mun verða Ólafi til stuðnings fram að áramótum er hann tekur við starfi á öðrum vettvangi.

Ólafur Daníelsson hefur verið deildarstjóri sérhæfðs húsnæðis frá því í ágúst á þessu ári. Hann kom til starfa hjá FSRE frá Eflu hf. Þar starfaði hann frá árinu 2005, síðast sem svæðisstjóri fyrirtækisins á Suðurlandi. Þar öðlaðist Ólafur reynslu m.a. af stjórnun, verkefnastjórnun og hönnun mannvirkja. Ólafur hefur M.Sc. gráðu í Byggingarverkfræði og C-vottun IPMA í verkefnastjórnun. Þá hefur hann lokið fjölmörgum námskeiðum í rekstri, stjórnun og byggingatengdum málefnum.

Þróun og framkvæmdir fer með umsjón fjárfestingarverkefna á þróunar- og framkvæmdastigi, innan og utan eignasafns FSRE, fyrir hönd ríkisins. Markmið sviðsins er að þróa og afla hagkvæmra, umhverfisvænna og verkefnamiðaðra aðstöðulausna sem styðja við skilvirkni og gæði í opinberri þjónustu innan sem utan eignasafns FSRE. Sviðið hefur umsjón með nýframkvæmdum bygginga, endurnýjun á núverandi húsnæði ríkisins og uppbyggingu ofanflóðavarna – á stigi hönnunar og framkvæmda. 

Fréttalisti