Þingvellir, Hakið - stækkun gestastofu
- Verkkaupi: Stofnanir
- Staða: Framkvæmd lokið
- Verkefnisnúmer: 601 2021
- Verkefnastjóri: Gíslína Guðmundsdóttir, frumathugun og áætlunargerð. Guðbjartur Á. Ólafsson, verkleg framkvæmd. Gunnar Sigurðsson, verkleg framkvæmd.
- Stærð mannvirkis: Um 1.270 fermetrar með eldri byggingu og tengigangi
Um verkefnið
Vegna síaukins straums ferðamanna að Þingvöllum var ákveðið að ráðast í stækkun núverandi Fræðslumiðstöðvar á Hakinu sem reist var árið 2002 og var 212 m2. Heildarstærð gestastofunnar með nýbyggingu, eldri byggingu og tengigangi er nú um 1.270 m². Innra skipulagi var breytt og samræmt með það í huga að inn í húsið kæmi hágæða sýning.
Verkkaupi er Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Um einstakt umhverfi og sögustað er að ræða og þarf að vanda mjög vel til allra bygginga sem reistar eru á svæðinu og halda landraski í lágmarki. Til að tryggja sem bestan árangur með tilliti til umhverfisins er stefnt að því að byggingin hljóti vottun samkvæmt umhverfisvottunarkerfinu BREEAM og var hönnuðum og verktaka gert að tryggja það í vinnu sinni. BREEAM vottun vegna hönnunar er lokið og vottun byggingar er langt komin.
Undirbúningur að sýningarhaldi hófst 2016 og hafði verið áætlað 40 m.kr. til undirbúnings þess. Samið var við Gagarín ehf. um hugmyndahönnun og voru hugmyndir þeirra samþykktar af Þingvallanefnd undir vinnuheitinu „Þingvellir, hjarta lands og þjóðar“. Fullnaðarhönnun á samþykktri hugmynd að sýningunni var boðin út á árinu 2017.
- Hönnun byggingarinnar var í höndum Glámu/Kím arkitekta ehf.
- Hakið ehf. (Gagarín, Gláma/Kím, Origo) sá um hönnun sýningarinnar.
- Umsjón og eftirlit var í höndum Framkvæmdasýslu ríkisins.
- Verkís ehf. var byggingarstjóri og hafði einnig umsjón með eftirliti.
Frumathugun
Frumathugun er fyrsti áfangi í ferli opinberra framkvæmda. Frumathugun var gefin út í desember 2013 að undangenginni þarfagreiningu sem unnin var í samvinnu við verkkaupa og Glámu-Kím arkitekta. Niðurstaða frumathugunar var að haldið yrði áfram með nauðsynlegar og aðkallandi úrbætur við Hakið í Þjóðgarðinum á Þingvöllum til að bæta aðkomu ferðamanna.
Áætlunargerð
Á árinu 2015 fékkst heimild til áætlunargerðar. Í framhaldinu var samið við arkitektastofuna Glámu-Kím um hönnun gestastofunnar ásamt Mannvit verkfræðistofu og lauk henni í upphafi árs 2016.
Verkleg framkvæmd
Tilboð í verkið voru opnuð í apríl 2016 og var tilboð Þarfaþings ehf. lægst. Lagt var til að gengið væri til samninga við fyrirtækið þrátt fyrir að tilboðið væri 20% yfir kostnaðaráætlun og fékkst sú heimild í október 2016.
Vegna tafa á því að gengið væri til samninga var samkomulag um að verkið mundi hefjast formlega í mars 2017 en unnið yrði við jarðvegsskipti eins og kostur væri þangað til. Verktaki lauk við aðstöðuplan og vegslóða að húsgrunni í lok desember 2016. Í lok árs 2017 var búið að steypa upp húsið að mestu og setja upp bæði steypt og létt þök yfir sýningarsali, anddyri og tengibyggingu yfir í eldri gestastofu. Verkinu lauk sumarið 2018. Lokaúttekt fór fram í nóvember 2018.