Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu 1 - Viðbygging
- Verkkaupi: Forsætisráðuneytið
- Staða: Í áætlunargerð
- Verkefnisnúmer: 501 0016
- Verkefnastjóri: Anton Örn Schmidhauser
- Tímaáætlun: Áætluð verklok eru í lok október 2019
Um verkefnið
Á næstu árum er gert ráð fyrir að hús rísi á baklóð stjórnarráðshússins að Lækjargötu 1 í Reykjavík. Framkvæmdir við þetta verkefni felast í fornleifagreftri, rannsóknum og greiningu á fornminjum. Annars vegar er um að ræða rannsókn á rótuðum mannvistarlögum undir núverandi yfirborðslögum og hins vegar rannsókn á eldri mannvistarleifum sem kunna að leynast undir rótuðu mannvistarlögunum.
Samstarfsaðili er Minjastofnun Íslands.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31. október 2019.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri.