LSH Landakoti - Þak K-álmu
- Verkkaupi: Stofnanir
- Staða: Verkefni lokið
- Verkefnisnúmer: 533 0706
- Verkefnastjóri: Gunnar Sigurðsson
- Tímaáætlun: Áætluð verklok eru í desember 2018
Um verkefnið
Verkið felst í endurnýjun vesturhluta þaks og múrviðgerða aðliggjandi turns í K-álmu Landspítala Landakoti. Núverandi rishæð og þakfrágangur eru rifin en haldið er í þaksperrur sem eru heflaðar eftir þörfum. Endurnýjun nær til þakklæðningar og kvista en ekki skorsteina og þakglugga. Frágangurinn verður bættur með tilliti til loftun þaks og þykkt einangrunar. Zinkklæðning kemur í staðinn fyrir núverandi steinskífuklæðningu.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri.
Verkleg framkvæmd
Útboð var auglýst 7. apríl 2018 og tilboð voru opnuð 25. apríl 2018. Tvö tilboð bárust og var tilboði lægstbjóðanda, verktakans Magnús og Steingrímur ehf., upp á 154.444.050 krónur tekið þann 25. maí 2018. Kostnaðaráætlun var 127.508.500 krónur og var tilboð Magnúss og Steingríms því 121,12% af kostnaðaráætlun.