Bygging 1772. Endurbætur, áfangi 1
- Staða: Verkefni lokið
- Verkefnisnúmer: 606 1040
- Verkefnastjóri: Sigurður M. Norðdagl
- Tímaáætlun: Áætluð lok á þriðja ársfjórðungi 2021
- Áætlaður kostnaður: 81. m
Byggingin nr.1772 verður notuð fyrir Ríkislögreglustjóra á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli.
Hún samanstendur af aðalbyggingu sem er 350 m² og tengibyggingu, sem er 25 m² bygging fyrir ljósavél sem staðsett er norðan við aðalbygginguna.
Um er að ræða gagngerar endurbætur á byggingunni og verður hún öll endurnýjuð að undanskildu burðarvirkinu.
Í þessum áfanga verður þakið endurbyggt og settar upp nýjar útihurðir og gluggar.
Einangra og klæða útveggi að innanverðu. Leggja bráðabirgðaraflagnir og bráðabirgðamiðstöðvarkerfi.